Fréttir
01.05.2009 - Fuglar á Suðausturlandi - fuglafestival
 

Fuglafestival verður haldið á Höfn og Djúpavogi laugardaginn 2.maí 2009. Tilgangur þess er að auka áhuga almennings á fuglaskoðun og kynna sér það fjölbreytta fuglalíf sem í boði er á þessu svæði. Markmiðið er að viðburður sem þessi verði árviss.

Dagskráin er eftirfarandi.

Höfn:

Merkingar í Einarslundi, farið frá hliðinu í Einarslundi kl. 7:00,8:00, 9:00 og 10:00.

Fræðsla um merkingar og hvers vegna er verið að merkja fugla og margt fleira.


Kl.13:00 verður farið í gönguferð með leiðsögn um Óslandið. Farið verður frá Akurey kl.13:00.

Djúpivogur:

Fuglaskoðun með leiðsögn um svæðið. Farið verður yfir helstu fuglaskoðunarsvæði í nágrenninu og ýmsan fróðleik tengdan fuglum. Mæting kl.11:00 við fuglasafnið, Sætúni, en þaðan verður farið út í Þvottárskriður, leirurnar í Álftarfirði skoðaðar, stoppað í skógræktinni og endað út við fuglaskoðunarhúsið við Selabryggjur.

Opið verður sérstaklega á fuglasafninu frá kl. 15:00-17:00 á laugardeginum.

 

Allir eru velkomnir og við hvetjum sem flesta til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að kynna sér okkar stórbrotna fuglalíf.

 

BR


Fugl Dagsins
Gráhegri
(Ardea cinerea)
Lengd : 90-98 cm
Þ...
.: nánar