• Forsíða |
• Fuglar í Djúpavogshreppi |
• Fuglaskoðunarsvæði |
• Þjónusta og afþreying |
• Upplýsingar um fugla |
• Tenglar |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
10.12.2009 - Skarfur langt upp á landi |
Ekki er það nú oft sem sjá má skarfa langt inn á landi, en þeir halda sig sem kunnugt er ævinlega fast við sjávarsíðuna, úti á skerjum eða á annesjum, nálægt ætinu. Í gær og dag hefur hinsvegar dílaskarfur haldið sig á lítilli tjörn við innkeyrslu í bæinn á Djúpavogi. Fjarlægð frá sjó er ríflega 1 km. Skarfur þessi er reyndar eitthvað reittur en þó býsna sprækur þegar hann vill svo við hafa. Ljósmyndari smellti af honum nokkrar myndir í dag sem sjá má hér meðfylgjandi. AS
|
Fugl Dagsins |
Heiðlóa (Pluvialis apricaria) Dvalartími : ap... .: nánar |