![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Fuglar í Djúpavogshreppi |
| • Fuglaskoðunarsvæði |
| • Þjónusta og afþreying |
| • Upplýsingar um fugla |
| • Tenglar |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
| 14.07.2011 - Toppskarfar í Papey með unga |
Í dag sendi Stefán Guðmundsson hafnarvörður á Djúpavogi heimsíðunni fágætar myndir af toppskarfi sem heldur til í Papey og ekki nóg með það heldur náði hann myndum af skarfinum á hreiðri með tvo unga sér við hlið. Á síðasta ári var staðfest að toppskarfur hefði sést í eyjunni á hreiðri en nú hafa þar sést tvö hreiður. Toppskarfar eru fáséðir hér austur á fjörðum en þeir halda sig að mestu við Breiðafjörð. Má með sanni segja að hér sé um kærkomna viðbót að ræða við hið fjölskrúðuga fuglalíf á svæðinu og er vonandi að toppskarfurinn sé komin til að vera í Papey. Heimasíðan þakkar hér með Stefáni kærlega fyrir myndirnar. AS
|
| Fugl Dagsins |
|
(Stercorarius parasiticus) Dvalartími... .: nánar |
















