Fréttir
31.01.2007 - Gráhegri
 
Gráhegri sást í botni Berufjarðar í gær.  Gráhegrar eru nokkuð algengir flækingar hér um slóðir en þó hafa ekki margir slíkir sést í vetur.  Þeir flækingar sem koma hingað eru í flestum tilfellum ungfuglar og talið er að þeir komi hingað frá Noregi en þessi háfætti fugl er algengur í Evrópu og Asíu.

Fugl Dagsins
Skúmur
(Catharacta skua)
Dvalartími : apríl ...
.: nánar