Fréttir
14.10.2007 - Hvalreki í Djúpavogshreppi
 

Í dag barst tilkynning um hvalreka en 8 m löng Andanefja hafði fundist í sandfjöru rétt austan við Þvottárskriður en það voru þeir Björn Hafþór og Jens Albertsson sem ráku augum í gripinn. Hér á meðfylgjandi myndum má sjá skepnuna en geta má þess að þetta er önnur Andanefjan sem finnst hér um slóðir á tillölulega skömmum tíma en fyrr í sumar fannst önnur Andanefja hér út í Hvaley en sú var heldur minni. AS

 

 



Fugl Dagsins
Heiðlóa
(Pluvialis apricaria)
Dvalartími : ap...
.: nánar