![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Fuglar í Djúpavogshreppi |
| • Fuglaskoðunarsvæði |
| • Þjónusta og afþreying |
| • Upplýsingar um fugla |
| • Tenglar |
| 11.11.2007 - Meira um rjúpuna |
Náttúrufræðistofnun hvetur rjúpnaskyttur til að klippa annan vænginn af rjúpum sem þeir veiða og senda stofnuninni. Af vængjunum má ráða hvort um er að ræða fugl á fyrsta ári eða eldri fugl. Fuglum af sama veiðisvæði eða úr sömu sveit þarf að halda saman í poka þannig að hægt sé að sundurgreina sýnin eftir landshlutum. Niðurstöður eru birtar jafnóðum hér á vef NÍ en þær verða meðal annars notaðar við mat á stofnstærð rjúpunnar í landinu. Fyrstu niðurstöður frá veiðitíma 2007: Samtals er búið að aldursgreina 278 fugla og eru allir af Norðausturlandi. Hlutfall ungfugla af heildinni er 75%. Stefnt er að því að aldursgreina 400−500 fugla úr hverjum landshluta, þannig að mikið vantar enn uppá fullt sýni. Vængina á að senda til: Náttúrufræðistofnun Íslands Nánari upplýsingar er að finna á vef Náttúrufræðistofnunar, www.ni.is.
|
| Fugl Dagsins |
|
(Alle alle) Dvalartími : október - ap... .: nánar |














