Fréttir
23.01.2009 - Samaust 2009
 

Laugardaginn 17. janúar fóru unglingar úr ZION í Egilsstaði til að taka þátt í SAMAUST, sem er söngvakeppni félagsmiðstöðva á Austurlandi.  Tvö atriði tóku þátt, f.h. nemenda, annars vegar Kjartan og Dagbjört og hins vegar Sonja og Dagbjört.  Alls voru 16 atriði í boði og lentu atriðin okkar í 4. og 5. sæti.  Fyrstu fjögur sætin veita þátttökurétt á SAMFÉS, sem er söngvakeppni allra félagsmiðstöðva á landinu.  Það var atriði Kjartans og Dagbjartar sem lenti í fjórða sæti og fara þau, fyrir okkar hönd til Reykjavíkur 21. febrúar nk.  Við óskum öllum krökkunum til hamingju með árangurinn og óskum Kjartani og Dagbjörtu góðs gengis í úrslitakeppninni. HDH


smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30