Fréttir
02.02.2009 - Vinnusöm börn
 

Eitthvað hefur verið lítið um fréttaflutning á síðunni sl. vikur.  Þar með er ekki sagt að það sé ekki nóg um að vera.  Ný önn hófst mánudaginn 19. janúar og telja flestir að þetta nýja fyrirkomulag á annaskiptum hafi tekist vel, þó ýmis smá mál hafi komið upp, sem við teljum auðvelt að leysa.  Gaman væri að heyra frá foreldrum varðandi þetta, bæði kosti og galla.
Nemendur eru nú í hefðbundinni kennslu og eru orðnir spenntir fyrir keppnisdögunum sem verða 23. - 25. febrúar nk.
Myndir úr skólastarfinu má finna hér.  HDH


smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30