Fréttir
10.03.2009 - Gjafir frá Hollandi
 

Sl. föstudag barst pakki á skrifstofu Djúpavogshrepps.  Heldur urðu menn hissa þegar hann var opnaður því í honum var fjöldinn allur af smágjöfum.  Í pakkanum var einnig bréf, landakort, myndir o.fl.  Þegar farið var að lesa bréfið kom í ljós að pakkinn var frá Sigurði Guðmundssyni, listamanni og hópnum sem kom með honum í heimsókn hér fyrir skemmstu.  Til að rifja málið upp þá var það þannig að Sigurður var á ferðalagi með hóp nemenda úr hollenskum listaháskóla og vildi endilega sýna þeim Djúpavog.  Um var að ræða fólk frá 22 mismunandi þjóðlöndum.  Borðað var á Hótelinu og boðið var upp á skemmtiatriði sem Berglind og Jószef, ásamt sjálfboðaliðum úr samsöngshóp grunnskólanum, sáu um.  Vöktu þau það mikla hrifningu hjá hópnum að þau langaði til að þakka fyrir sig með fyrrnefndum pökkum.
Í morgun kom Bryndís Reynisdóttir í heimsókn í samsönginn, þýddi bréfið fyrir krakkana, afhenti þeim gjafirnar og sýndi myndir o.fl.  Það er gleðilegt að þessi litli viðburður hér hafi skilað eins miklu til erlendu gestanna, sem raun bar vitni og segir okkur það að við eigum hér í skólanum okkar og þessu litla sveitarfélagi söngvara og efnilegt söngfólk á heimsmælikvarða.  Myndir eru hér.  HDH


smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30