3. - 5. bekkur nýttu góða veðrið sl. föstudag til að fara í fjöruferð. Við gengum sem leið lá út á Hvítasand og grömsuðum í fjörunum á leiðinni. Horfðum eftir fuglum og sáum margt áhugavert. Úti á Hvítasandi fundum við margt skemmtiegt og þar borðuðum við einnig nestið (í Selhaus). Eins og alltaf í svona ferðum var tíminn of naumur og þurftum við því að drífa okkur heim. Allar skeljarnar sem við fundum bíða frekari greiningar en við stefnum að því að fara aftur í fjöruferð næsta föstudag. Myndir eru hér. HDh |