• Forsíða |
• Um skólann |
• Nemendur |
• Foreldrar |
• Myndasíða |
• Skóladagatal |
• Upplýsingar |
• Málefni tónskólans |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
20.01.2011 - Fundarboð |
Í haust var gerð tilraun til að efla æskulýðsstarf á Djúpavogi. Foreldrar og fulltrúar frá Neista, slysavarnafélaginu, skólanum, sveitarfélaginu og kirkjunni skipulögðu starf haustannarinnar. Það er mál manna að vel hafi til tekist. Fjölbreytt dagskrá var í boði og þátttaka góð. Allir sem tóku að sér að skipuleggja viðburðina stóðu sig með prýði. Nú á að endurtaka leikinn og skipuleggja vorönnina með sama hætti. Fundur verður haldinn mánudaginn 24. janúar kl. 18:00 í skólanum. Mikilvægt er að sem flestir mæti. BE
|
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|