• Forsíða |
• Um skólann |
• Nemendur |
• Foreldrar |
• Myndasíða |
• Skóladagatal |
• Upplýsingar |
• Málefni tónskólans |
26.01.2012 - Íþróttasprell hjá 0. - 2. bekk |
Hefð er fyrir því að elstu nemendur leikskólans heimsæki grunnskólann síðasta árið sitt í leikskólanum. Mjög gott er að byrja aðlögun barnanna sem fyrst þannig að þau verði búin að kynnast sem flestum þáttum grunnskólans þegar þau hefja skólastarið 6 ára gömul. Sl. mánudag fóru þau í heimsókn í íþróttatíma með nemendum 1. og 2. bekkjar. Verður farið annan hvorn mánudag í allan vetur og fylgir starfsmaður af leikskólanum börnunum í íþróttahúsið og aðstoðar við tímann þar. Á mánudagsmorguninn mættu börnin mjög spennt í leikskólann, öll tilbúin með íþróttatöskurnar sínar og klár í slaginn. Eins og sést á meðfylgjandi myndum þá gáfu þau eldri börnunum ekkert eftir í fimi og lipurð og höfum við fengið fregnir af því að foreldarnir hafi fengið íþrótakennslu þegar komið var heim. Myndir frá fyrsta íþróttatímanum eru hér. HDH |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|