Jæja þá eru hinir árlegu Keppnisdagar í grunnskólanum í fullum gangi aftur. Þeir hófust í dag og eins og venjulega fengum við góða gesti úr Grunnskóla Breiðdalshrepps til að taka þátt í þeim með okkur. Keppnisgreinarnar í ár eru: Heimilisfræði, sund, íþróttir, hæfileikakeppni, listsköpun og náttúrufræði. Í dag kepptu yngri nemendur í íþróttum og æfðu sig síðan fyrir hæfileikakeppnina. Eldri nemendurnir fóru í heimilsfræði, þar sem þeir bökuðu tebollur og þaðan í sund þar sem þeir þurftu að leysa margs konar þrautir eins og brettaboðsund, flot, körfubolta, blak o.fl. Síðan fóru þeir í náttúrufræði þar sem gera þurfti tilraunir, greina fugla, steina o.fl. og síðan í listsköpun þar sem þeir unnu listaverk úr afgöngum.
Á morgun víxlast verkefnin og á öskudaginn verður uppskeruhátíð í íþróttahúsinu. Hún hefst klukkan 10:30 og eru allir íbúar sveitarfélagsins velkomnir.
Myndir af fyrsta keppnisdegi eru hér. HDH |