Í flóknu starfi grunn- og leikskóla er oft gott að breyta til og bregða á leik.
Í leikskólanum fara börnin oft í hlutverkaleiki og klæða sig í "búninga" sem eru til þar. Alltaf vantar föt í þennan leik og auglýsum við hér með eftir gefins hlutverkafötum. Þetta geta t.d. verið hattar, slæður, gamlir kjólar, jakkar, búningar o.fl. sem ekki eru lengur not fyrir heima.
Í grunnskólann vantar okkur Legó-kubba. Gott er að breyta til, t.d. í viðveru og í yngstu bekkjum og eru Legó-kubbar mjög þroskandi leikföng, sem börnin hafa mjög gaman af því að vinna með.
Ef einhverjir eiga Legó-kubba (sem þeir vilja lána, eða gefa) eða hlutverkaföt / búninga má hafa samband við: Halldóru, Berglind, Kristrúnu, Þórdísi eða Guðrúnu. HDH |