Ég vil minna okkur öll á að gangbrautir eru fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Þegar veðrið er svona gott er mikið af börnum og fullorðnum á ferli og mjög mikilvægt að við sem förum ferða okkar á bifreiðum sínum fulla tillitssemi og stöðvum bílana okkar við gangbrautirnar og hleypum gangandi og hjólandi vegfarendum yfir. Einnig vil ég hvetja foreldra til þess að fara leiðina í skólann með börnunum sínum og kenna þeim hvar á að fara yfir götur, þannig að allir komist heilir á húfi á leiðarenda. HDH |