
5.-7. bekkur í Djúpavogsskóla og Grunnskóla Breiðdalshrepps fóru í heimsókn til Seyðfirðinga í Skaftfell og Tækniminjasafnið í dag. Þar fengu þau leiðsögn og tóku þátt í listsmiðju í þeirra boði. Þeir útveguðu rútu frá Tanna Travel sem beið okkar þegar við mættum í skólann.
Í Skaftfelli tók Hanna Sigurkarlsdóttir á móti okkur og fengum við leiðsögn um sýninguna "Hnallþóra í sólinni" sem eru grafíkverk eftir svissneska listamanninn Dieter Roth. Eftir leiðsögnina tókum við þátt í listsmiðju sem hefur verið útfærð í tengslum við sýninguna, tvíhandarteikningum og að vinna með bókstafastimpla eins og sjá má á myndum sem fylgja hér með.
Á Tækniminjasafninu tók Pétur Kristjánsson forstöðumaður safnsins á móti okkur og lagði áherslu á prentverkstæði safnsins sem m.a. hefur að geyma pressur frá Dieter Roth. Hann sýndi okkur í verki hvernig vélarnar virka og sýndi dæmi um hvernig maður prentar grafíkverk.
Okkur fannst þetta mjög skemmtilegt og áhugavert. Löng ferð í rútu var líka skemmtileg og við þökkum kærlega fyrir okkur.
LDB, 5. – 7. bekkur |