![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Um skólann |
| • Nemendur |
| • Foreldrar |
| • Myndasíða |
| • Skóladagatal |
| • Upplýsingar |
| • Málefni tónskólans |
| 28.08.2014 - Skólabyrjun |
Kæru nemendur og forráðamenn
Nú líður að því að skóli hefjist að nýju að afloknu sumarfríi. Vil ég bjóða ykkur öll hjartanlega velkomin til starfa.
Djúpavogsskóli hefst föstudaginn 29. ágúst og mánudaginn 1. september með opnu húsi:
Kennsla hefst skv. stundaskrá, þriðjudaginn 2. september, kl. 8:05. Athugið, haustþing kennara á austurlandi verður 5. september og því eru nemendur í fríi þann dag. Vakin er athygli á því að innkaupalistar hafa verið uppfærðir og þá má finna á heimasíðu skólans. Einnig er vakin athygli á því að beiðni um leyfi þarf að sækja um til umsjónarkennara og má finna eyðublað á heimasíðu skólans. Einnig er hægt að fá þau í skólanum. Ýmis eyðublöð hafa verið send heim sem þið eruð beðin um að fylla út og skila í síðasta lagi 1. september, þegar þið mætið á „opna húsið“. Um er að ræða ýmis nauðsynleg atriði, s.s. skráningu í mötuneyti, viðveru, upplýsingar frá tónskólanum, reglur tónskólans o.fl.
Mötuneyti hefst þriðjudaginn 2. september.
Umsjónarkennarar í vetur verða sem hér segir: Jóhanna Reykjalín verður með 1. bekk Ingibjörg Bára Gunnlaugsdóttir með 2. og 3. bekk Þorbjörg Sandholt með 4. og 5. bekk Sigríður Ósk Atladóttir með 6. og 7. bekk Lilja Dögg Björgvinsdóttir með 8., 9. og 10. bekk
Við hér í grunnskólanum hlökkum til að starfa með ykkur í vetur og vonumst til að samstarfið verði ánægjulegt og árangursríkt eins og það hefur verið fram að þessu.
Bestu kveðjur, f.h. starfsfólks grunnskólans, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir, skólastjóri |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|















