• Forsíða |
• Um skólann |
• Nemendur |
• Foreldrar |
• Myndasíða |
• Skóladagatal |
• Upplýsingar |
• Málefni tónskólans |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
24.09.2014 - Landvörður |
Halla Ólafsdóttir Landvörður kom í heimsókn í Djúpavogsskóla í september. Hún hefur starfað sem landvörður við Herðubreiðarlindir en þar sem eldgos hófst í Holuhrauni var hún send þaðan. Hún kynnti Vatnajökulsþjóðgarð fyrir nemendum í 4. og 5. bekk. Þar var rætt um spendýr og fugla sem lifa í garðinum, einkenni þeirra og einnig um þjóðgarðinn sjálfann og einmitt um nafnið þjóð-garður, garður sem þjóðin á og við viljum að eigi um ókomna framtíð. Náttúruvernd og eldgos var nemendum ofarlega í huga í þessari heimsókn. Takk Halla fyrir að koma til okkar. Myndir fylgja þessari frétt. LDB |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|