Fréttir
01.10.2007 - Áríðandi frá Grunnskóla Djúpavogs
 

Eins og staðan er núna lítur allt út fyrir að ferðin okkar í réttir verði að veruleika á morgun, þriðjudaginn 2. október.  Farið verður frá grunnskólanum ekki seinna en kl. 13:00.  Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma með og sjá sér fært að keyra börnin eru vinsamlegast beðnir um að mæta um 12:55 til að hægt sé að raða í bílana.  Réttað verður í Hamarsseli.

Nokkrir foreldrar höfðu haft samband við skólastjóra og boðið sig fram til að keyra börnin.  Þeirra boð er þegið með þökkum og ítrekað að allir foreldrar og forráðamenn sem geta vinnu sinnar vegna verið með eru velkomnir.

Nemendur og foreldrar eru hvattir til að klæða sig eftir veðri.  Áætlað er að vera komin til baka um 15:00.  HDH


smþmffl
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31