• Forsíða |
• Um skólann |
• Nemendur |
• Foreldrar |
• Myndasíða |
• Skóladagatal |
• Upplýsingar |
• Málefni tónskólans |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
04.10.2007 - Réttir |
Í gær, þriðjudag, fóru nemendur, foreldrar og starfsfólk grunnskólans í réttir. Hugmyndin að þessari ferð kviknaði í vor og þar sem starfsfólkið hér er þekkt fyrir að láta sér detta ýmislegt í hug - og framkvæma það - þá var ákveðið að láta til skarar skríða. Undirbúningsvinnan fór af stað strax í september og eftir að hafa verið í sambandi við formann landbúnaðarnefndar og hina og þessa bændur og fjallskilastjóra varð niðurstaðan sú að fara með allan hópinn í Hamarsselsrétt. Ferðin hófst við grunnskólann klukkan eitt. Þar var mættur góður hópur af foreldrum, tilbúinn að taka nemendur með í bílana. Þegar búið var að raða öllum inn í bíl, var ekið sem leið lá inn í Hamarssel. Þar tók á móti okkur húsfreyjan Guðný Jónsdóttir. Svavar bóndi, ásamt fleiri knáum smölum var enn uppi í fjalli og sáum við til þeirra þar sem við biðum við bílana. Ekki leið löng stund þar til okkur var sagt að við mættum ganga áleiðis til þeirra upp brekkuna og gerðum við það. Stuttu síðar var féð komið í réttina og menn og skepnur nokkuð sátt hvert við annað. Það var þó ekki laust við að kindurnar væru hissa á öllum þessum fjölda. Að þessu loknu þurftum við að smala túnið. Það var létt verk og skemmtilegt. Áður hafði Elva þó farið með nokkra röska drengi til að aðstoða Svavar en við hin sáum um túnið. Björg og Þórunnborg tókum nokkra nemendur með sér en við hin röltum á móti þeim í rólegheitunum. Gekk þetta stórslysalaust fyrir sig utan þess að rétt áður en við komum öllu fénu í réttina slapp ein kind með tvö lömb. Skólastjórinn sýndi ótrúlega takta og náði öðru lambinu og fékk góða aðstoð við það frá tveimur nemendum. Kindin og hitt lambið hlupu nánast alla leið til baka en tveir vaskir drengir úr 10. bekk náðu lambinu og röltu með það í rólegheitunum til baka. Eftir þetta fóru Guðný Gréta og Guðmundur Valur yfir það hvernig dregið er í dilka. Fengu þau nokkra sjálfboðaliða sér til aðstoðar og var mikill áhugi hjá nemendum við að bjóða sig fram. Þegar við vorum að fara að hugsa til heimferðar kom Guðný í Hamarsseli færandi hendi með kleinur, kökur og nammi, ásamt drykkjarföngum handa öllum gestunum. Ekki var annað að sjá en að menn kynnu vel að meta þetta framtak hennar og runnu kleinurnar ljúflega niður ásamt öllu hinu góðgætinu. Við í Grunnskóla Djúpavogs viljum þakka þeim Guðnýju og Svavari kærlega fyrir einstaklega vel heppnaða ferð. Ljóst er að mikill vilji er hjá okkur í skólanum að endurtaka þetta á næsta ári og vonandi gengur það eftir. Takk fyrir okkur. Þá vill skólastjóri einnig koma á framfæri þakklæti til allra þeirra foreldra sem sáu sér fært að taka þátt í þessum degi með okkur. Myndir má nálgast hér. HDH |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|