![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíđa |
| • Um skólann |
| • Nemendur |
| • Foreldrar |
| • Myndasíđa |
| • Skóladagatal |
| • Upplýsingar |
| • Málefni tónskólans |
| 15.06.2017 - Störf viđ tónskóla og grunnskóla |
Tónskólinn Í tónskólann vantar okkur deildarstjóra í 100% starf, sem heyrir undir skólastjóra en sinnir daglegri skipulagningu, foreldrasamstarfi og almennu utanumhaldi. Þá vantar einnig kennara við tónskólann í 50% starf. Möguleiki er að annar þessara starfsmanna sinni tónmenntakennslu við grunnskólann og sjái um samsöng (5-6 kst.) Grunnskólinn Í grunnskólann vantar umsjónarkennara í 3. bekk og umsjónarkennara í 5.-7. bekk. Einnig vantar okkur dönskukennara um 10 kst. á viku. Kennarar og leiðbeinendur við grunn- og tónskólann vinna eftir kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir veitir nánari upplýsingar á skolastjori@djupivogur.is eða í síma 470-8713. Umsóknarfrestur er t.o.m. 23. júní 2017. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu grunnskólans http://djupivogur.is/grunnskoli/ Djúpavogsskóli er lítill en vaxandi skóli. Kennsla fer fram á þremur starfsstöðvum, grunnskóla með um 70 nemendur, leikskóla með tæplega 40 nemendur og tónskóla. Mikið og gott samstarf er á milli allra skólastiga. Einnig er mjög gott samstarf við Umf. Neista en yfir 90% nemenda grunnskólans stunda æfingar hjá ungmennafélaginu og taka þær við strax að loknu skólastarfinu. Í Djúpavogsskóla er lögð mikil áhersla á umhverfismennt og átthagafræði og stendur nú yfir innleiðing á hugmyndafræði Cittaslow en sveitarfélagið Djúpavogshreppur varð aðili að Cittaslow hæglætishreyfingunni árið 2013. |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|















