![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíđa |
| • Um skólann |
| • Nemendur |
| • Foreldrar |
| • Myndasíđa |
| • Skóladagatal |
| • Upplýsingar |
| • Málefni tónskólans |
| 20.02.2018 - Deildarstjóri viđ Tónskóla Djúpavogs / organisti viđ Djúpavogskirkju |
Deildarstjóra vantar við Tónskóla Djúpavogs Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónskóli og fyrir skólaárið 2018 – 2019 vantar okkur deildarstjóra í tónskólann í 100% starf. Hann heyrir undir skólastjóra en sinnir daglegri skipulagningu, foreldrasamstarfi og almennu utanumhaldi. Þá vantar einnig tónlistarkennara við grunnskólann til að sinna tónmenntakennslu og samsöng u.þ.b. 23% starfshlutfall. Djúpavogskirkja auglýsir samhliða eftir organista við kirkjuna en starfshlutfallið þar er 27% Um frábært tækifæri er að ræða t.d. fyrir tvo tónlistarkennara og eru möguleikar á 100% starfshlutfalli fyrir báða aðila, t.d. með því að kenna í grunnskólanum, eða bjóða uppá tónlistarnám fyrir einstaklinga, kóra eða hvað sem er. Í Djúpavogsskóla er lögð mikil áhersla á umhverfismennt og átthagafræði og stendur nú yfir innleiðing á hugmyndafræði Cittaslow en sveitarfélagið Djúpavogshreppur varð aðili að Cittaslow hæglætishreyfingunni árið 2013. Mikil samvinna er milli grunn- og tónskólans og á hverju ári er settur upp söngleikur þar sem allir nemendur grunnskólans taka þátt með aðstoð frá nemendum og starfsfólki tónskólans. Mikil hefð er fyrir frábæru tónlistarstarfi í sveitarfélaginu og margir aðilar hér sem sinna tónlistariðkun og því fjölbreyttir og skemmtilegir möguleikar í boði fyrir hugmyndaríkt fólk. Laun greiðast skv. kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skólastjóri, Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir veitir nánari upplýsingar á skolastjori@djupivogur.is eða í síma 470-8713. Sóknarprestur, Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir veitir nánari upplýsingar á sjofnjo@simnet.is eða í síma 892-7651 Umsóknarfrestur er t.o.m. 2. mars 2018.
|
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|















