Fréttir
09.11.2007 - Foreldravika
 
Vikuna 12. - 16. nóvember eru foreldrar / forráðamenn boðnir sérstaklega velkomnir í skólann.  Þá verður "foreldravika" sem við vonumst til að festist í sessi sem hluti af skólastarfinu.  Foreldrar, ömmur, afar, systkini og aðrir aðstandendur eru velkomnir í heimsókn til að fylgjast með daglegu skólastarfi hjá nemendum. 
Stefnt er að því að hafa Norræna skólahlaupið í næstu viku og væri mjög gaman ef einhverjir aðstandendur sæju sér fært að ganga / hlaupa með nemendum.  Fyrirkomulag á því verður auglýst nánar þegar nær dregur.
HDH

smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30