• Forsíða |
• Um skólann |
• Nemendur |
• Foreldrar |
• Myndasíða |
• Skóladagatal |
• Upplýsingar |
• Málefni tónskólans |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
06.12.2007 - ATH! ATH! ATH! Okkar menn komnir í úrslit í íslenskukeppni grunnskólanna |
Það er nú bara ekkert flóknara en það að þremenningarnir úr Grunnskóla Djúpavogs, þeir Arnar Jón, Aron Daði og Jóhann Atli eru komnir í úrslit íslenskukeppni grunnskólanna. Þeir komust í gegnum undanúrslitin fyrr í dag. Í úrslitum munu okkar menn mæta Egilsstaðaskóla A. Úrslitin fara fram kl. 17:00 í dag í beinni útsendingu í Svæðisútvarpi Austurlands. Að sjálfsögðu hvetjum við alla til að stilla á Rás 2 og fylgjast með okkar mönnum. Því miður er Svæðisútvarpið ekki sent út í beinni á netinu en reikna má með að upptaka verði sett inn fljótlega eftir að keppni líkur. Slóðin er http://dagskra.ruv.is/streaming/egilsstadir/ Áfram GD! ÓB |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|