Fréttir
05.02.2008 - Skóli á grænni grein
 

Í framhaldi af sjálfsmatsvinnu við Grunnskóla Djúpavogs var ákveðið að sækja um Grænfánann, en verkefnið er, eins og segir á heimasíðu Landverndar, alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.

Starfsfólk og nemendur við Grunnskóla Djúpavogs hafa nú tekið fyrsta skrefið í verkefninu sem felst í því að sækja um að verða skóli á grænni grein og höfum við nú fengið jákvætt svar við þeirri bón.  Í framhaldinu þurfum við síðan að stíga skrefin sjö:
- stofna umhverfisnefnd skólans,
- meta stöðu umhverfismála í skólanum,
- gera áætlun um aðgerðir og markmið til umhverfisbóta í skólanum,
- sinna stöðugu eftirliti og endurmati á umhverfismálum í skólanum,
- fræða nemendur um umhverfismál,
- kynna stefnu sína út á við og fá aðra með,
- setja skólanum formlega umhverfisstefnu.
Þegar þessi skref hafa verið stigin getur skólinn sótt um að fá Grænfánann. Skólinn getur tekið sér þann tíma sem hann vill til að ná þessum markmiðum.

Allar nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Landverndar:  http://landvernd.is/graenfaninn/
HDH


smþmffl
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31