Fréttir
15.04.2008 - Að aflokinni foreldraviku
 
Foreldra- / aðstandendavikan var í síðustu viku, eins og flestir vita.  Aðsóknin var heldur dræm fyrstu tvo dagana, en síðan færðist heldur betur fjör í leikinn og var þátttakan, þegar upp var staðið góð.  Alls komu yfir 20 manns í heimsókn í hinar ýmsu kennslustundir.  Sumir nýttu kaffi- og / eða matartíma á sínum vinnustað til að reka inn nefið, en aðrir höfðu betri tíma og gátu stoppað lengur. 
Starfsólk skólans og nemendur eru mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag og ítrekað skal að foreldrar eru velkomnir hvenær sem er í skólann.  HDH

smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30