Fréttir
23.05.2008 - Vinnustaðakynning
 

Núna eru vinnustaðakynningarkrakkarnir hjá skólastjóranum að setja þessa frétt á heimasíðuna og heimsækja skólann.  Á eftir fáið þið að sjá myndir.  Bráðum förum við í hádegismat að borða hamborgara og Guðjón hlakkar mikið til.  Alda Kristín lenti einu sinni í hrikalegu slysi og var næstum dottin af hestbaki.  Óliver segist vera skemmtilegasti strákurinn í skólanum en Ragnar er ekki sammála því.  Þórunn situr þæg og hlustar, Davíð er að fara að eignast lítið systkin, Kristófer er í Supermanbol og heldur með Arsenal.  Ísland komst áfram í Eurovision í gærkvöldi og það var massasnilld.  Embla er að lesa blað og Bjartur var að eignast litla frænku í nótt.  HDH

 

 


smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30