![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Djúpavogshöfn |
| • Myndasafn |
| • Þjónusta á Djúpavogi |
| • Verslun, veitingar og afþreying |
| • Cruise ships in Djúpivogur |
| • Information for yacht sailing |
Höfnin
Þú ert hér: Fréttir
| 01.12.2010 - Háhyrningar í Berufirði |
Síðastliðinn mánudag mátti sjá þegar fjórir háhyrningar syntu um Berufjörð og var atgangur mikill þar sem þeir réðust að hverjum fuglahópnum á fætur öðrum alveg uppi í landsteinum. Svo aðgangsharðir voru háhyrningar þessir að sjá mátti t.d. einn þeirra elta æðarblika fast upp að hafskipabryggjunni í Gleðivík þar sem hann náði blikanum með miklum buslugangi. Þessum atgangi náði Þórir Stefánsson á myndavélina sína og meðfylgjandi myndasyrpa er sannarlega glæsileg. Við þökkum Þórir kærlega fyrir þessar myndir. Texti: AS |
Veðrið í dag
| Flóð og Fjara: 06.10.2026 |













