Höfnin
14.07.2011 - Vísir hf. kaupir búnað frá Marel
 

Frétt af Marel.is

Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Vísir hf., sem er með höfuðstöðvar í Grindavík, hefur undirritað samning um kaup á vinnslubúnaði frá Marel í allar fjórar landvinnslueiningar sínar. Um er að ræða vinnslulínu, skurðarvélar, samvalsflokkara, hráefnisflokkara og vogir, ásamt Innova hugbúnaði.

Samningurinn er mikilvægur áfangi fyrir báða aðila. Fyrir Vísi, er mikilvægt að nýta sér ávallt nýjustu tækni sem völ er á hverju sinni. Fyrirtækið rekur  útgerð og landvinnslu á Íslandi, auk þess að taka þátt í sjávarútvegi erlendis. Umfang fyrirtækisins er því mikið og mikilvægt að hafa sem besta yfirsýn og eftirlit með framleiðslunni. Fyrir Marel er hér um að ræða stærstu einstaka sölu á búnaði í íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki.

Pétur Hafsteinn Pálsson, forstjóri Vísis
„Við höfum mjög góða reynslu af samstarfi við Marel þegar kemur að  tækja- og hugbúnaði. Marel þekkir þarfir sjávarútvegsins og það endurspeglast í virkni og gæðum búnaðarins. Okkar markmið er að byggja á traustum vinnslu- og hugbúnaði sem er í stöðugri þróun og getur fylgt okkur inn í framtíðina. Við teljum Marel uppfylla þær kröfur og því veljum við búnað frá Marel.“

Stærstur hluti vinnslubúnaðarins verður settur upp í starfsstöð Vísis á Húsavík til endurnýjunar á eldri búnaði en einnig verður settur upp búnaður á Djúpavogi og Þingeyri. Nýi búnaðurinn mun bæta mjög alla aðstöðu starfsfólks ásamt því að auka framleiðslugetu og nýtingu í framleiðslu á ferskum fiski til útflutnings. Með þessum samningi er Vísir hf. kominn með Innova hugbúnað frá Marel í allar sínar landvinnslueiningar til notkunar við gæða- og vinnslueftirlit.

ÓB


Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.13:00:00
Hiti:4,6 °C
Vindátt:S
Vindhraði:9 m/sek
Vindhviður:12 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.13:00:00
Hiti:7,7 °C
Vindátt:S
Vindhraði:2 m/sek
Vindhviður:8 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.13:00:00
Hiti:6,9 °C
Vindátt:ANA
Vindhraði:5 m/sek
Vindhviður:7 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 20.4.2024