• Forsíða |
• Djúpavogshöfn |
• Myndasafn |
• Þjónusta á Djúpavogi |
• Verslun, veitingar og afþreying |
• Cruise ships in Djúpivogur |
• Information for yacht sailing |
Höfnin
Þú ert hér: Fréttir
09.05.2012 - Sannkallað strandveiðiævintýri |
Í gömlum íslenskum sögnum segir frá svokölluðu síldarævintýri. Í glænýjum sögnum frá Djúpavogi segir frá strandveiðiævintýri. Sannkölluðu. Ekkert lát virðist á komu aðkomubáta hér í höfnina, en um 40 bátar lágu við bryggju í kvöld. Ástæða þessa fjölda hér er að sögn (ekki gamalli) mokfiskirí á Hvítingum en undantekning hefur verið ef sjómenn hafa ekki verið að koma með skammtinn að degi loknum. Bátar allt frá Seyðisfirði hafa lagt leið sína hingað á Djúpavog og tökum við þessum aufúsugestum opnum örmum og fögnum hverjum þeim sem bætist í hópinn. Hafi vefmyndavélin einhverntíma þurft að vera í fullu fjöri, þá er það núna. Því miður er ekki að sjá að hún sé á leiðinni heim á næstu vikum. Við reynum þess í stað að setja inn myndir reglulega. ÓB
|
Veðrið í dag
Veðurstöðin Papey kl.01:00:00 | |
Hiti: | 5,8 °C |
Vindátt: | ASA |
Vindhraði: | 11 m/sek |
Vindhviður: | 13 m/sek |
Veðurstöðin Teigarhorn kl.01:00:00 | |
Hiti: | 5,1 °C |
Vindátt: | A |
Vindhraði: | 6 m/sek |
Vindhviður: | 8 m/sek |
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.01:00:00 | |
Hiti: | 6,4 °C |
Vindátt: | ANA |
Vindhraði: | 7 m/sek |
Vindhviður: | 11 m/sek |
Flóð og Fjara: 19.3.2024 |