• Forsíða |
• Um Bjarkatún |
• Deildir Bjarkatúns |
• Skólaskrifstofan |
• Myndaalbúm |
• Matseðill |
• Foreldrafélag |
• Umsókn um leikskólavist |
• Skóladagatal |
• Ýmsir tenglar |
• Söngtextar |
23.10.2009 - Kubbastarf í leikskólanum |
Þá er vetrarstarf leikskólans komið á fullt skrið en eitt af því sem börnin gera í hópastarfi er að fara í einingakubba. Einingakubbar eru trékubbar sem eru hannaðir út frá hugmyndum Caroline Pratt um leikefni sem væri sveigjanlegt og börn gætu notað það án stýringar frá kennara. Kubbarnir byggjast á rétthyrndum grunnkubbi og miðast allir kubbarnir út frá honum. Grunnkubburinn er þannig að breidd hans er jöfn og tvöföld þykkt hans og lengdin jöfn tvöfaldri breidd hasn. Síðan eru fleiri rétthyrndir kubbar, helmingi minni, tvöfaldt eða þrefalt stærri. Þríhyrningar eru en þeir geta verið helmingur eða fjórðungur af grunnkubbi og ýmist á lengdina eða breiddina. Síðan eru sívalingar, bogar og beygjur auk flóknari forma sem öll eru byggð út frá grunnkubbnum. Á fyrsta stiginu eru börnin að handfjatla kubbana, færa þá milli staða og stafla óreglulega Samkvæmt stigi 2 þá byrja þau að búa til turna Eða raða kubbunum hlið við hlið Á 3 stigi glíma þau við að brúa bilið á milli tveggja kubba með þeim þriðja og hér má sjá aðra útfærslu af að brúa tvo kubba saman Á fjórða stiginu byrja börnin að raða saman kubbum þannig að þeir afmarki svæði Þessir byggðu sér hús og afmörkuð þannig sitt svæði með kubbunum, stig 4 Hér má glöggt sjá fimmta stigið þar sem byggingar einkennast af jafnvæi og samhverfu Hér má sjá Latabæjargeimskip sem er einmitt einkennandi fyrir 6 stig þegar börnin fara að gefa byggingunum sínum nöfn sem tengist hlutverki og starfsemi þeirra Hér má sjá ólík form búin til úr kubbunum og svo hafa þau fengið litaða tréteninga til að skreyta en á 7. stiginu eru börnin farin að gera aukna kröfu um slíkt viðbótarefni.
Hægt er að sjá fleiri myndir úr hópastarfi Krummadeildar hér og Kríudeildar hér ÞS
|
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|