BAUJUNÁMSKEIÐ
Solveig Friðriksdóttir hefur áhuga á að vera með „Baujunámskeið“ fyrir foreldra á Djúpavogi, fimmtudaginn 12. nóvember, ef næg þátttaka fæst.
Baujunámskeiðið er sjálfsstyrkinganámskeið þar sem frætt er um tilfinningar okkar og hvernig þær hafa áhrif á hegðun og líðan. Kenndar verða einfaldar aðferðir til að takast á við erfiðar tilfinningar í dagsins önn svo og slökunaröndun.
Námskeiðið er í fyrirlestrarformi, engin einstaklings- eða hópverkefni og enginn þarf að óttast að þurfa að standa upp fyrir framan hóp og tala. Námskeiðið tekur um tvo tíma.
Hægt er að fræðast nánar um Baujuna á www.baujan.is
Solveig er með B.A. próf í sálfræði, jógakennari og hefur unnið við kennslu sl. 11 ár. Hún hefur kennt Baujuna fyrir nemendur í Grunnskólanum á Stöðvarfirði (sex námskeið). Þá hefur hún haldið tvö námskeið fyrir nemendur á Fáskrúðsfirði, eitt námskeið fyrir foreldra Grunnskólans á Stöðvarfirði, tvö námskeið fyrir starfshópa og eitt fyrir kennara á Kennaraþingi ásamt því að hafa haldið eigin fræðslufyrirlestra til persónuuppbyggingar. (Síðasti fyrirlestur sem hún hélt var fyrir rúmlega 100 manns).
Foreldri greiðir 1.000.- kr. fyrir námskeiðið en ef báðir foreldrar koma saman kostar það 1.500.- kr.- Grunnskólinn / leikskólinn og foreldrafélögin greiða það sem upp á vantar. Lágmarksþátttaka eru 8 manns.
Áhugasamir hafi samband við Halldóru (dora @djupivogur.is) – 478-8246 eða Guðrúnu (gudrun@djupivogur.is) – 478-8832 fyrir 6. nóvember nk.
|