Eins og foreldrar grunn- og leikskólabarna hafa tekið eftir er búið að festa upp skilti við grunn- og leikskólann sem á stendur: Vinsamlegast drepið á bílnum. Skiltin voru smíðuð af þeim Axel, André og Adam og var vinnan unnin í tengslum við Grænfánann. Í morgun komu þeir Bjarni Tristan og Guðjón Rafn, ásamt smíðakennara, í heimsókn á leikskólann til að festa skiltið upp. Gekk það mjög vel, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Viljum við því hvetja alla foreldra og aðra sem stöðva bíla sína framan við grunn- og leikskólann að drepa á þeim!!! HDH |