Nú stendur yfir skipulagning fyrir næsta skólaár, bæði í grunn- og leikskólanum. Foreldrar vinsamlegast athugið eftirfarandi:
Leikskóli: Sækja þarf um vistun fyrir börn sem eiga að fá að koma inn í haust, eins fljótt og mögulegt er. Tilkynna þarf um breytingar á vistunartíma þeirra barna sem nú er í leikskólanum, eins fljótt og mögulegt er. Segja þarf upp vistun, ætli barn að hætta í leikskólanum, eins fljótt og mögulegt er.
Grunnskóli: Tilkynna þarf til skólastjóra ef barn verður ekki í grunnskólanum næsta skólaár, eins fljótt og mögulegt er. Senda þarf inn umsókn til skólastjóra fyrir lok maí, hyggist foreldri skrá barn sitt / börn sín í grunnskólann næsta haust.
Eyðublöð vegna leikskólans fást í leikskólanum.
Skráning og nánari upplýsingar fást með því að senda tölvupóst á skolastjori@djupivogur.is eða í síma 899-6913.
Halldóra Dröfn, skólastjóri Djúpavogsskóla
|