• Forsíða |
• Um Bjarkatún |
• Deildir Bjarkatúns |
• Skólaskrifstofan |
• Myndaalbúm |
• Matseðill |
• Foreldrafélag |
• Umsókn um leikskólavist |
• Skóladagatal |
• Ýmsir tenglar |
• Söngtextar |
11.06.2014 - Útskriftarferð 2014 |
Elstu nemendur leikskólans héldu í útskriftarferð í lok maí en 11 börn útskrifuðust úr leikskólanum þann 31. maí sl. Í ár var farið í safnaferð og fóru nemendurnir ásamt tveimur kennurum í heimsókn á steinasafnið hans Auja. Tók Auji vel á móti þeim og sýndi þeim safnið og sagði frá. Allir fengu svo einn slípaðan stein að gjöf. Þá var farið í Löngubúð þar sem Rán tók á móti þeim og sýndi þeim allt í Löngubúðinni, Ríkharðssafn, Eysteinsstofu og svo var farið upp á loft og skoðað hvað það hafði að geyma. Eftir skoðunarferðina var farið á kaffihúsið þar sem beið þeirra nýbökuð kaka og ávaxtasafi. Vel heppnuð útskriftarferð þar sem allir skemmtu sér vel og urðu margs fróðari um þessi söfn á Djúpavogi. Í steinasafninu Á Ríkharðssafninu Á Löngubúðarloftinu Hressing í lok útskriftarferðar ÞS |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|