![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Um Bjarkatún |
| • Deildir Bjarkatúns |
| • Skólaskrifstofan |
| • Myndaalbúm |
| • Matseðill |
| • Foreldrafélag |
| • Umsókn um leikskólavist |
| • Skóladagatal |
| • Ýmsir tenglar |
| • Söngtextar |
Fréttir
Þú ert hér: Fréttir
| 20.03.2015 - Sólmyrkvi 2015 |
Jæja þá erum við búin að upplifa sólmyrkvann en tunglið var aðeins of fljótt á sér að skyggja á sólina því alskýjað var framundi hádegi en þá var komin glampandi sól. Í staðinn sáum við þegar það kviknaði á ljósastaurunum í bænum og svo slökknaði á þeim aftur. Það dimmdi yfir og birti svo aftur sem var mjög skrítið. Við höfðum með okkur epli og settumst niður og borðuðum þau saman. Síðan fórum við hjá hringsjánni og sáum Papey, Búlandstind og auðvitað sveitabæina okkar í Berufirðinum. Þetta var skemmtileg gönguferð og upplifun fyrir alla að verða vitni af sólmyrkvanum.
Fyrst var allt svona
En svo allt í einu varð allt svona
Í myrkrinu
Auðvitað prófuðum við gleraugun ÞS |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|




















