Fréttir
26.09.2007 - Námskeið
 

Starfsfólk leikskólans hefur verið duglegt að sækja námskeið í ár og er það bara af hinu góða.  Í byrjun júní fóru allir starfsmenn leikskólans á skyndihjálparnámskeið sem haldið var sameiginlegt fyrir grunnskólann og leikskólann.  Stefnt er að því að fara á slíkt námskeið annað hvert ár.  Eftir sumarfrí var síðan haldið sameiginlegt námskeið með grunnskólanum í grenndarnámi eða grenndarkennslu og fóru allir starfsmenn leikskólans á það.  Á haustþingi leikskólanna fóru þrír starfsmenn á þingið og sátu þrjú námskeið, málörvunarnámskeið, íþróttanámskeið og námskeið tengt yngstu börnum leikskólans.  Á mánudaginn sl. þá fór undirrituð á námskeið til Reykjavíkur en það var námskeið í að taka Hljóm-2 próf.  Hljóm-2 er skimunarverkfæri sem lagt er fyrir öll 5 ára börn í leikskólanum og á að segja til um lestrarfærni þeirra þegar þau koma í grunnskólann.  Þetta er mjög marktækt próf og getur orðið til þess að hægt  er að grípa fyrr inní ef útlit er fyrir að barn muni eiga í erfiðleikum með lestur í grunnskólanum.  Áætlað er að leggja þetta próf fyrir elstu nemendurnar nú á næstu dögum og síðan mun undirrituð fara á seinni hluta námskeiðsins í byrjun nóvember þar sem kennt verður hvernig lesa eigi úr niðurstöðunum.  Ef barn kemur ílla út úr prófinu eða einhver þáttur verður lélegur munum við vinna með hann sérstaklega í samstarfi við foreldra og síðan taka annað próf í lok janúar til að meta hvort við höfum getað aðstoðað barnið við að bæta sig. 

ÞS


smþmffl
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31