Fréttir
09.05.2008 - Tölvukerfi leikskólans
 

Vegna tregðu og einhvers sem ég get ekki útskýrt þá hefur tölvukerfi leikskólans verið í lamasessi nú í marga mánuði.  Við erum nýfarin að geta skrifað inn fréttir þó svo að þær hafi nú ekki verið margar hér á síðunni þá er ástæðan sú að ekki er hægt að setja neinar myndir með fréttunum og þá er lítið gaman að setja þær inn.  Þannig að það eina sem tölvukerfið býður upp á er að setja inn myndalausar fréttir og ekkert annað.  Þannig getum við ekki sett inn nýjar myndir á myndasíðuna né lagfært síður sem eru úreldar.  Vonir standa nú um að hann Óli tölvuséní láti sjá sig hér í leikskólanum og lagi þetta við fyrsta tækifæri en þangað til verðum við bara að sýna þolinmæði.  En um leið og kerfið kemst í gagnið munum við uppfæra síðuna eftir bestu getu og setja inn nýtt efni.

ÞS 


smþmffl
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30