![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Saga UMF Neista |
| • Afreksmenn Neista |
| • Stjórn Neista |
| • Fótbolti |
| • Frjálsar íþróttir |
| • Sund |
| • Tímataflan |
| • Myndasafn |
| • Tenglar |
| • Hafa samband |
| • Zion félagsmiðstöð |
| 28.03.2011 - Ferðaþjónustan Eyjólfsstöðum sigurvegari í spurningakeppni Neista |
Úrslit í spurningakeppni Neista þetta árið réðust síðastliðinn laugardag á Hótel Framtíð. Að þessu sinni voru úrslitaviðureignirnar með örlítið breyttu sniði frá undankeppnunum og þurftu keppendur m.a. að hlaup og hringja bjöllu í bjölluspurningunum, þekkja tónlist sem spiluð var afturábak, viðra leiklistarhæfileikana og flokka rusl ! Fyrst riðu á vaðið Ferðaþjónustan Eyjólfsstöðum og Kvenfélagið Vaka. Vöku-konur héldu vel í við Ferðaþjónustuna þar til kom að leiknum atriðum en þá var staðan 19-15 fyrir Ferðaþjónustuna. Segja má að ferðaþjónustumenn hafi unnið sigur í þessari viðureign með góðum töktum í leiklist og næmu eyra fyrir afturábak-leikinni tónlist og varð lokaniðurstaðan 31-22. Þá stigu næst á stokk Við Voginn og H.B. Grandi. Eftir 20 hraðaspurningar var staðan miður góð fyrir lið Við Voginn því þeir voru undir 10-16 og bjölluspurningar framundan. Egill Egilsson fyrirliði Við Voginn reimaði þá á sig hlaupaskóna og bretti upp ermar, nú skildi sko taka nokkur stig í bjölluspurningunum ! Egill sýndi ansi góð tilþrif og skutlaði sér á bjölluna hvað eftir annað, en réttu svörin létu aðeins á sér standa. Staðan að loknum bjölluspurningum var 15-19 fyrir Granda. Við voginn hélt áfram að saxa á lið Granda í leiknu atriðunum og tónlistinni en því miður dugði það ekki til og lokastaðan var 25-28 fyrir Granda-mönnum. Úslitakeppnin var æsispennandi og hnífjöfn frá byrjun. Að loknum hraða-og bjölluspurningum var staðan 17-16 fyrir H.B.Granda. Þá voru Granda-menn sendir út úr salnum á meðan Eyjólfsstaðir flokkuðu rusl í kappi við klukkuna. Búið var að útbúa þennan fína flokkunar-vegg með hólfum fyrir hvern flokk og þurftu menn að flokka heimilisrusl úr einum kaupfélagspoka og enda á að flokka pokann. Þetta vafðist nú ekki mikið fyrir Ferðaþjónustu-mönnum sem flokkuðu á fínum tíma og gerðu einungis 2 vitleysur. Þá var komið að H.B.Granda, þeir voru ekki eins vissir á því hvernig átti að flokka og þurftu stundum aðeins að hugsa sig um og ræða málin. Granda-menn tóku heldur lengri tíma í þetta og gerðu 5 vitleysur. Þá var staðan orðin 17-18 fyrir Ferðaþjónustunni. Að loknum tónlistargetraunum og lokaspurningu var staðan jöfn 23-23 og ljóst að draga þurfti fram aukaspurningarnar. Þegar búið var að spyrja 4 aukaspurninga var staðan enn jöfn 25-25 og sýnt að bráðabani var nauðsynlegur til að finna sigurvegara. Í bráðabananum var Ferðaþjónustan á Eyjólfsstöum fljótari á takkanum, náði svarréttinn, svaraði rétt og vann sigur á liði H.B.Granda. Umf. Neisti vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra þeirrra sem tók þátt, með einum eða öðrum hættti, í að gera þessa keppni. Þetta er ein af stærstu fjáröflunum Neisti ár hvert og þökkum við keppnisliðum og áhorfendum kærleg fyrir stuðninginn. Því miður var enginn ljósmyndari á vegum Neista á staðnum, en kunni einhverjir úr salnum að hafa tekið myndir og eru tilbúnir að birta þær á heimasíðunni, mega þeir hafa samband á netfangið djupivogur@djupivogur.is SDB |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|















