• Forsíða |
• Saga UMF Neista |
• Afreksmenn Neista |
• Stjórn Neista |
• Fótbolti |
• Frjálsar íþróttir |
• Sund |
• Tímataflan |
• Myndasafn |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• Zion félagsmiðstöð |
02.03.2012 - Aðalfundur Neista |
Aðalfundur Neista var haldinn síðastliðinn sunnudag í Löngubúð. Fundurinn var góður þó mæting foreldra á fundinn hefði mátt vera betri. Á fundinum kom fram að mikill kraftur er í starfi félagsins og nánast öll börn (6-16 ára) á staðnum taka þátt í starfi á vegum Neista. Fyrir fundinn var ljóst að mikil mannaskipti þyrftu að eiga sér stað í stjórn og ráðum félagsins. Út úr stjórn gengu: Sóley Dögg, Klara, Hlíf og Albert. Í nýja stjórn Neista voru kosin: Kristborg Ásta Reynisdóttir, Ester Sigurásta Sigurðardóttir, Lilja Dögg Björgvinsdóttir, Pálmi Fannar Smárason og Óðinn Sævar Gunnlaugsson. Í nýtt sundráð voru kosin: Snjólfur Gunnarsson, Elísabet Guðmundsdóttir og Dröfn Freysdóttir. Yngriflokkaráð á eftir að fullskipa og eru þeir sem áhuga hafa á fótboltaiðkunn barnanna beðnir um að gefa sig fram við nýja stjórn eða á neisti@djupivogur.is. Fráfarandi stjórn vill þakka öllu Neista-fólki kærlega fyrir samstarfið á undanförnum árum og óskar nýrri stjórn velfarnaðar. Íþróttamenn Neista 2011 Á aðalfundi Neista voru þau börn verðlaunuð sem höfðu staðið sig sérstaklega vel á síðastliðnu ári. Venja er fyrir því að veita verðlaun fyrir mestu framfarir í sundi og fótbolta, sund-Neistann, fótbolta-Neistann og Íþróttamaður ársins. Að þessu sinni fengu eftirfarandi verðlaun: Eftirfarandi eru myndir frá aðalfundi: Fundurinn.
Formaður flytur tölu.
Fundarstjóri og stjórn Neista.
Halldóra fer með tölu fyrir sunddeild.
Kristborg fer með tölu fyrir yngri flokka.
Sund-Neistinn: Mestu framfarir í sundi:
Fótbolta-Neistinn: Mestu framfarir í fótbolta:
Verðlaunahafar:
Íþróttamenn ársins: |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|