• Forsíđa |
• Saga UMF Neista |
• Afreksmenn Neista |
• Stjórn Neista |
• Fótbolti |
• Frjálsar íţróttir |
• Sund |
• Tímataflan |
• Myndasafn |
• Tenglar |
• Hafa samband |
• Zion félagsmiđstöđ |
26.06.2012 - Sumarhátíđ ÚÍA |
Helgina 6. – 8. júlí verður haldin Sumarhátíð ÚÍA á Egilsstöðum. Keppt verður í fjölmörgum greinum í sundi og frjálsum. Einnig verður keppt í fótbolta. Við viljum biðja foreldra að hafa sem fyrst samband við þjálfara ef þeir sjá sér fært að fara á Sumarhátíð með börn sín og skrá þau í keppnisgreinar. Neisti þarf einnig á sjálfboðaliðum í starf á Sumarhátíðinni og þiggjum við alla þá aðstoð sem býðst við mótið. Áhugasamir láti Rabba eða Ester vita.
Árið 2010 var keppt í þessum greinum í frjálsum íþróttum. · 17 ára og eldri karlar, konur/: Langstökk, hástökk, kringlukast, kúluvarp, spjótkast, 100 m hlaup, 800 m hlaup, 4x100 m boðhlaup. · 15-16 ára sveinar og meyjar: Langstökk, þrístökk,hástökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast, 100 m hl, 400 m hlaup (ný grein), 800 m hlaup, 1500 m hlaup og 4x100 m boðhlaup. · 13-14 ára piltar og telpur: Langstökk, þrístökk, hástökk, kúluvarp, kringlukast, spjótkast, 100 m hlaup, 400 m hlaup, 800 m hlaup, 1500 m hlaup g 4x100 m boðhlaup. · 11-12 ára strákar og stelpur: Langstökk, hástökk, kúluvarp, spjótkast, 60 hlaup, 4x 100 m boðhlaup, 600 m hlaup. · 9-10 ára hnokkar og hnátur: Langstökk, 60 m hlaup, 600 m hlaup og boltakast. · 8 ára og yngri pollar og pæjur: Langstökk, 60 m hlaup, 400 m hlaup og boltakast. · Auk þess verði boðið upp á þrautaboðhlaup í anda Kids Athletics fyrir alla keppendur 10 ára og yngri.
LDB |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|