Hér koma upplýsingar til að skýra aðeins línurnar fyrir 17. júní.
- Hverfin halda sínum lit og velja sér eitt svæði innan sinna litamarka og skreyta það svæði extra vel.
- Hver litur ákveður tvo kónga (18 ára+) og láti vita fyrir 15.júní (láta Hönnu vita: neisti@djupivogur.is )
- Tveir aðilar frá hverjum lit til að sjá um dagskrá á Neistavellinum ásamt stjórn Neista. Þessir aðilar þurfa að vera einn fullorðinn og einn 14+. LÁTIÐ VITA SEM FYRST hvaða aðilar þetta eru sem ætla að aðstoða.
- Byrjað að skreyta sunnudaginn 14. júní og tekið niður síðasta lagi sunnudaginn 21. júní
- Eftir að ljóst er hver vinnur farandbikarinn verður farið með Neistagrillið á hverfasvæði sigurvegaranna og hvetjum við öll liðin til að mæta og grilla saman.
Nánari dagskrá auglýst síðar |