![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Saga UMF Neista |
| • Afreksmenn Neista |
| • Stjórn Neista |
| • Fótbolti |
| • Frjálsar íþróttir |
| • Sund |
| • Tímataflan |
| • Myndasafn |
| • Tenglar |
| • Hafa samband |
| • Zion félagsmiðstöð |
| 21.09.2016 - Kynningardagur félagasamtaka, fyrirtækja og frumkvöðla í Djúpavogshreppi |
Hvað er um að vera í vetur? Kynningardagur félagasamtaka, fyrirtækja og frumkvöðla í Djúpavogshreppi verður haldinn Laugardaginn 8. október 2016 milli kl. 15:00-17:00 í Íþróttamiðstöð Djúpavogshrepps, ef næg þátttaka fæst Í Djúpavogshreppi er fjölbreytt flóra félagasamtaka, fyrirtækja og frumkvöðla með mjög mismunandi starfssemi og virkni. Sum hafa mögulega þörf á samstarfsaðilum, sjálfboðaliðum og/ eða fleiri þátttakendum til að efla megi félagsskapinn og starfsemina, önnur eru rótgróin með góða virkni sem gaman er að kynna fyrir öðrum. Nú gefst öllum í Djúpavogshreppi tækifæri á að kynna sig, sitt og/ eða sinn rekstur á lifandi og skemmtilegan hátt líkt og gert var í janúar sl. og sést á þessu myndskeiði: Umf. Neisti sér um skipulag og uppstillingu í sal, býður upp á barnagæslu í barnalandinu, verður með veitingasölu og fleira fjölbreytt og fjörugt sér til fjáröflunar. Þátttakendur geta valið um stærð og gerð á kynningarbása: með 1-2 borðum, stólum eða auðan bás á verðbili 1.000-3.000 kr.- sem rennur í félagsstarf Neista. Öllum þátttakendum er velkomið að nýta tækifærið sér til fjáröflunar, skráningar á nýjum félagsmönnum, sölu á varningi, happadrætti, með söng, leik eða einhverju allt öðru til kynna sína starfsemi á sinn hátt svo dagurinn verði sem allra flottastur og gestir kynnist starfseminni sem best. Básunum verður raðað upp þannig að þátttakendur geta verið með fleiri en einn bás/ starfsemi. Þátttakendur geta skráð sig rafrænt hér fyrir föstudaginn 30. september og fengið frekari upplýsingar eða skráð sig beint hjá Ágústu Margréti á vefpóstinn agusta@arfleifd.is eða í sími 863-1475. Með því að smella hér getið þið skoðað myndir frá síðasta kynningardegi sem haldinn var í janúar síðastliðnum. Með von um góð viðbrögð og dúndurdag á Djúpavogi Fh. umf. Neista
|
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|















